Skilmálar
Endurgreiðslustefna
Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Varan er endurgreidd með millifærslu á bankareikning eða kreditkort viðskiptavinar. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Skilaréttur
Skilafrestur er 1 mánuður, eingöngu gegn framvísun kvittunar eða reiknings. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í upprunalegum óskemmdum umbúðum þegar henni er skilað. Ekki er hægt að skila sérpöntunum, tilboðsvörum né rafmagnsvörum sem ekki er hægt að meta ástand með útlitsskoðun.
Ef um gallamál er að ræða áskilur Sókn ehf. sér að fá þriðja aðila til að meta meintan galla. Ef um galla er að ræða fær kaupandi nýja vöru eða endurgreiðslu að fullu. Ekki er tekin ábyrgð á vinnutapi eða verkstæðis kostnaði sem verður vegna vöru galla. Vespur.is greiðir allan sendingarkostnað sem um ræðir.
Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru fær hann vöruna endurgreidda.
Afhending á vöru
Afhending miðast við útgáfudag reiknings. Allar pantanir eru afgreiddar 1-3 virkum dögum eftir að pöntun hefur verið staðfest. Ef afhendingu vöru seinkar af völdum seljanda mun það verða tilkynnt kaupanda í tölvupósti eða með símtali ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar. Af öllum pöntunum dreift af þriðja aðila (Íslandspóstur, Flytjandi eða Landflutningar) gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þess aðila um afhendingu vörunnar.
Vespur.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara verður fyrir tjóni eða týnist í póstflutning frá því að hún er send frá Vespur.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Greiðsla
Hægt er að greiða með greiðslukorti eða með pei. Ef greiðsla fyrir vefpöntun berst ekki innan 2 virkra daga áskilur seljandi sér rétt til að hætta við pöntunina.
Verð og upplýsingar
Vespur.is veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund. Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um bilanir, birtingar- og innsláttarvillur í texta. Vespur.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Sé verði breytt eftir að pöntun hefur farið fram gildir það verð er var í gildi þegar pöntun var gerð.
Öll verð í vefverslun eru með 24% VSK nema annað sé tekið fram.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.