Refund policy
Endurgreiðslustefna
Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Varan er endurgreidd með millifærslu á bankareikning eða kreditkort viðskiptavinar. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Skilaréttur
Skilafrestur er 1 mánuður, eingöngu gegn framvísun kvittunar eða reiknings. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í upprunalegum óskemmdum umbúðum þegar henni er skilað. Ekki er hægt að skila sérpöntunum, tilboðsvörum né rafmagnsvörum sem ekki er hægt að meta ástand með útlitsskoðun.
Ef um gallamál er að ræða áskilur Vespur.is sér að fá þriðja aðila til að meta meintan galla. Ef um galla er að ræða fær kaupandi nýja vöru eða endurgreiðslu að fullu. Ekki er tekin ábyrgð á vinnutapi eða verkstæðis kostnaði sem verður vegna vöru galla. Vespur.is greiðir allan sendingarkostnað sem um ræðir.
Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru fær hann vöruna endurgreidda.