Shipping policy

Afhending á vöru

Afhending miðast við útgáfudag reiknings. Allar pantanir eru afgreiddar 1-3 virkum dögum eftir að pöntun hefur verið staðfest. Ef afhendingu vöru seinkar af völdum seljanda mun það verða tilkynnt kaupanda í tölvupósti eða með símtali ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar. Af öllum pöntunum dreift af þriðja aðila (Íslandspóstur, Flytjandi eða Landflutningar) gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þess aðila um afhendingu vörunnar.

Vespur.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara verður fyrir tjóni eða týnist í póstflutning frá því að hún er send frá Vespur.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.